Leita í fréttum mbl.is

Fyrir hönd frónbúa, velkomnir FESTINGAR!!

Minn stærsti ótti er orðinn að veruleika, festingarnir eru komnir!!

Festingur er líklegast sú eina tegund skordýrs sem ekki á eftir að vekja kátínu og gleði í huga barna, alveg sama þó töfravendi Disney/Pixar yrði sveiflað af afli yfir þeim. Náttúra þeirra er þannig að ekki hugnast undirrituðaðum að neinn gæti haft gaman af lífshlaupi þeirra, sem er nokkurn veginn þannig að strax eftir að hinn glaðlegi ungi skríður úr eggi fer hann að leita eðlislægt að hýsil.

Þetta gerir hann með því að hengja sig á strá/grein/hækkun og hangir þar glaðhlakkalegur og bíður eftir að EINHVERT dýr gangi hjá. Þegar hann verður var við víbring tengdan hreyfingu stærri dýra(ekki allar festinga-tegundir hafa augu (Ixodes ricinus)) þá æsist hann upp og krækir sig á feld//klæði/hörund viðkomandi.

Ekki Þeir sækja í hlýja raka staði þannig að krikar eru eftirlæti en þó geta þeir látið sér allt lynda enda glaðhlakkalegir eins og fyrr var nefnt. Nú þegar á bráðina er komið hefst festingurinn handa við að bora bittönnum sínum ásamt rana inn í hörund hýsilsins og virkar raninn með utanáliggjandi tönnum sínum sem akkeri og gerir það erfitt að ná þeim úr aftur er þeir hafa komið sér fyrir. Hafa ber í huga að frá biti til sýkingar á borelliu líða 1-2sólarhringar, þannig að móðursýki er kannski ekki nauðsyn, strax.

Flest öll dýr geta orðið fyrir árásum frá festingum, allt frá selum til fugla og ber því að hafa augun hjá sér eftir snertingu við öll dýr á tímabilinu maí-október þar sem vinnuhitastig festinga er 5gráður og þaðan uppaf. Tímabilið er allt árið er talað er um stærri húsdýr, svosem kindur og nautgripi og önnur dýr er höfð eru á húsi. Athugið lausgangandi húsdýr svosem hunda og ketti reglulega og hafið augum hjá ykkur því einkennin eru nokk augljós ásamt því sem þetta getur og hefur leitt til taugaskemmda.

Sjáanleg einkenni festingabits.  Finnst mér tiltölulega óábyrgt af heilbrigðisyfirvöldum að hafa EKKI reynt að upplýsa okkur um þessa hættu, vissulega eru algengastu einkenni festingabits jú bara pirringur og kláði, EN þau gætu líka verið gigt, síþreyta, taugaskemmdir og tímabundin lömun.

Rannsóknir hafa einnig bent til að dráttur á meðferð geti leitt til sjálfsofnæmis.

 

Mín spurning til yfirvalda er því þessi: Eru fleiri ógnvaldar sem hafa numið land og ykkur láðst að nefna? 


mbl.is Einstaklingur sýktur af skógarmítli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri um (skovfloaat) eða skógarmítil á íslandi.

Mig langar að benda gæludýra eigendum sérstaklega kattareigendum að varast þessa pöddu þar sem þetta kemur til með að geta verið i trjám og runnum í görðum fólks þegar þetta breyðist út að ráði.

Þetta ógeðslega kvikindi hefur líka eiginleika til að fela sig í öllu hári og passa þarf að börn séu með derhúfu eða álíka ef farið er þar sem mikið er af trjá og runnum.

Hægt er að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir smit með efnum eins og Front Line sem er til fyrir bæði hunda og ketti og drepur flót og flær. Veit samt ekki hvort það fæst á Íslandi eða annað áþekkt, ef ekki þá er um að gera að bæta þar úr sem fyrst.

http://frontline.dk.merial.com/html/index.asp

En ef svo skyldi fara að þið þyrftuð einhvertima að ná þessu kvikindi af manneskju eða dýri er fyrst og fremst að passa að kreista það ekki, alls ekki, ef þið kreistið belginn á kvikindinu kreistið þið allt sem í honum er inn í líkamann á viðkomandi þar sem raninn virkar í báðar áttir.

Alltaf að reyna að taka varlega undir belginn og slíta það mjög hægt og rólega úr.

http://www.skovflaaten.dk

Karlotta (IP-tala skráð) 23.10.2009 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Alti R
Alti R

Alti R heitir drengurinn og er að flyjast aftur heim til Ísland. Hef búið í California undanfarin 12ár með eigin fyrirtæki.

Hef gert margt og reynt margt og hitt marga.

 

Lemmy í Motorhead lýsti mér kannski best: "A nice guy to spend one day with" 

Josh í QOfTSAum mig: "I "

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband